Eruð þið komin með nóg af
verðhækkunum?
Frystum fasteignagjöld
Staðan í dag
Húsnæðisstefna meirihlutans hefur leitttil gríðarlegra verðhækkana á húsnæði. Ekki er nóg byggt og það sem byggt er er of einsleitt.
Borgin hefur óeðlilegan hvata af hækkun húsnæðisverðs. Hækkun húsnæðisverðs skilar fleiri krónum í borgarsjóð í formi fasteignagjalda.
Fasteignaskattar hækkuðu um 38%
á kjörtímabilinu. Fyrirséð er að hækkunin verði sambærileg á næsta kjörtímabili.

Verðbólga og vextir í landinu fara hækkandi.
Áhrifin eru til dæmis:
Verð á nauðsynjavörum hækkar
Hækkandi afborganir af húsnæðislánum
Við viljum stöðva þessa þróun með því að frysta frekari hækkanir á fasteignagjöldum.
Það þýðir að þú borgar sömu krónutölu í fasteignagjöld út kjörtímabilið, óháð hækkandi fasteignamati.
Þar af leiðandi minnkar hvati borgarinnar til að halda íbúðaverði háu, hvatinn til að byggja meira eykst og stöðugleiki næst í fasteignaverð.

En hvað ef ég flyt eða kaupi nýja íbúð á kjörtímabilinu?
Þá borgar þú fasteignagjöld í samræmi við fasteignamat við upphaf kjörtímabils.
Hækkandi fasteignagjöld hafa áhrif á okkur öll
Hærri fasteignagjöld valda
hærra leiguverði fyrir fólk og fyrirtæki
Hærri fasteignagjöld leiða af sér
hærra verð á vöru og þjónustu

Hærri fasteignagjöd
á atvinnuhúsnæði
Hærri rekstrarkostnaður fyrirtækja
Hærra verð á vöru og þjónustu
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík lofar að frysta fasteignaskatta nái flokkurinn í meirihluta í borginni. Um er að ræða viðbragð við verðlagsþróun og hækkandi vaxtastigi...