top of page

Leysum leik­skóla­vandann og eflum skólana

Það er löngu orðið tímabært að færa grunnskólann niður um einn árgang þannig að börn hér á landi hefji grunnskólanám fimm ára og ljúki því fimmtán ára. Fyrir þessu má færa veigamikil rök, ekki síst á sviði uppeldis- og kennslufræði. Sú fræðigrein hefur á undanförnum áratugum gagnrýnt margar eldri höfuð kenningar sínar sem augljóslega vanmátu greind og þroska barna. Áhrif þessarar gagnrýni má m.a. finna stað í þeirri viðleitni að breyta leikskólum í síauknum mæli úr dagvistun í metnaðarfulla skóla með skipulagt námsefni. Auk þess yrði þessi breyting stórt skref í átt að einstaklingsmiðuðu námi sem nú er mjög í deiglunni.


Góð reynsla í 94 ár

Skóli Ísaks Jónssonar er sjálfseignarstofnun sem sinnt hefur markvissri kennslu fimm ára barna frá stofnun skólans, 1926, eða í tæpa öld. Sá skóli fer í öllu að grunn- og leikskólalögum og hefur lengi verið góð fyrirmynd í íslensku skólakerfi. Þessi tilhögun þar hefur ætíð gefist mjög vel. Þá má geta þess að börn hefja grunnskólanám við fimm ára aldur í mörgum þeim löndum sem við helst berum okkur saman við.


Samfella skólastiga

Grunnþættir menntunar eru þeir sömu í aðalnámskrá grunn – og leikskóla og eiga að fléttast inn í allt nám nemenda. Fimm ára bekkur í grunnskóla tæki þannig mið af blönduðu kerfi þar sem stuðst yrði við kennsluaðferðir beggja skólastiga. Í fimm ára bekk yrði grunnurinn sem áður nám í gegnum leik. Það góða og faglega starf sem nú er innt af hendi í leikskólanum gefur okkur færi á að brúa bilið enn frekar milli leik- og grunnskóla. Það er mikilvægt að samfella sé í námi og að nám á fyrri skólastigum nýtist á því næsta. Rannsóknir benda til að námsefni skarist á mörkum skólastiga. Það gefur til kynna að hægt sé að stytta leikskólann um eitt ár þannig að grunnskólaganga hefjist við fimm ára aldur og ljúki við fimmtán ára aldur. Nemendur hæfu þá framhaldsskólanám, og síðar háskólanám, á sama aldri og jafnaldrar þeirra víða um heim..


Sóknarfæri fyrir leikskóla

Ef Reykjavíkurborg riði á vaðið með þessa breytingu gæfist strax raunverulegur kostur á að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Öllum tólf mánaða börnum verður þá tryggð leikskólavist án tafar.

Hér hreyfa eflaust ýmsir þeirri mótbáru að til lítils sé að losa leikskólann við einn árgang, ef hann bætist svo hvort sem er við grunnskólann. En flestir grunnskólarnir hafa mun meira svigrúm til að sinna þessum eina árgangi, fremur en leikskólarnir. Í öllum grunnskólum eru t.d. starfandi frístundaheimili sem gætu nýst vel fimm ára börnum við endurskipulagningu skóladagsins. Þessi frístundaheimili sinna nemendum að loknum hefðbundnum skóladegi, en standa yfirleitt auð fyrir hádegi.


Öllum til hagsbóta

Að lokum ber þess að geta að við þessa breytingu mun skólaganga leik- og grunnskólans styttast um eitt ár. Slíkar breytingar hefðu í för með sér feykilegan sparnað. Þær spara nemandanum heilt ár. En Reykjavíkurborg myndi spara um fjóra milljarða á ári. Þá fjármuni mætti nýta til að bæta verulega launakjör leik- og grunnskólakennara, bæta kennslubúnað og starfsaðstæður nemenda og kennara og yfirleitt gera góða leik- og grunnskóla borgarinnar enn betri.

23 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page