top of page

Má bjóða þér til Tenerife?

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík:


Flestir geta verið sammála um að grunnþjónustu í okkar frábæru borg er ábótavant. Leikskólapláss eru af skornum skammti, ástand skólahúsnæðis ófullnægjandi, þrifum og snjómokstri ábótavant og borgarstjóra hefur meira að segja tekist að skerða þjónustustig Strætó.


Þetta er ástand sem ekki verður við búið, enda er það grundvallarhlutverk sveitarfélags að sjá til þess að innviðir og grunnþjónusta virki sem skyldi. Um þetta á kosningabaráttan að snúast.


Reykjavík sem virkar.


Mörgum kann að þykja umfjöllun um fjármál óspennandi, en mergurinn málsins er sá að Reykjavík mun ekki virka nema að fjárhagurinn sé traustur. Verkefnið er ærið í þeim efnum. Reykjavík hefur því miður verið rekin með vinstri hendinni um langa hríð. Fjármunum hefur verið forgangsraðað í kerfisvöxt og gæluverkefni á meðan grunnverkefnin hafa setið á hakanum.


Staðreyndirnar eru þær að skuldir borgarinnar hafa aukist um þriðjung á kjörtímabilinu. Til lengri tíma mun mikið mæða á niðurstöðu varðandi bókfærslu á eignum félagsbústaða, en fari sem horfir munu áhrif af breyttum reikningsskilum hafa tugmilljarða neikvæð áhrif á rekstrar- og efnahagsreikning borgarinnar. Einsýnt er að slíkt hafi slæm áhrif á eignastöðu og lánshæfi.


Starfsfólki borgarinnar hefur fjölgað um tuttugu prósent kjörtímabilinu, þrátt fyrir að mannekla sé í skólakerfinu og grunnþjónustu á borð við götuþrif varla sinnt. Borgarstjóri hefur fyrst og fremst fjölgað skrifstofufólki. Hann forgangsraðar kerfisvexti, en lætur grunnþjónustu borgarinnar sér í léttu rúmi liggja. Borgin ber þess merki.


Borgarstjóri forðast að fjalla um fjármál borgarinnar, og þegar hann loks fæst til þess er dregin upp rammskökk mynd. Hin blákalda staðreynd er sú að borgarsjóður er ekki sjálfbær, og þarf að reiða sig á arðgreiðslur frá Orkuveitunni til að endar nái saman.


Orkuveitan er fyrirtæki að langstærstu leyti í eigu Reykjavíkurborgar sem byggir afkomu sína á þjónustugjöldum borgarbúa – skattheimtu. Samkvæmt arðgreiðsluáætlun Orkuveitunnar á Reykjavíkurborg að fá 25,4 milljarða í sinn hlut á árunum 2022-26, eða sem nemur um 440 þúsund krónum á hvert heimili í Reykjavík.


Lausleg athugun leiðir í ljós að fyrir tæpar 440 þúsund krónur má fá vikuferð til Tenerife í sumar fyrir fjögurra manna fjölskyldu. Gist er á fjögurra stjörnu hóteli með líkamsrækt og SPA, og það er meira að segja golfvöllur innan seilingar.


Nú langar kannski ekki alla til Tenerife, en mergurinn málsins er sá að þessir peningar tilheyra borgarbúum, og að því leyti sem Orkuveitan er aflögufær ætti auðvitað að skila þeim í vasa borgarbúa með lækkun þjónustugjalda.


Verkefnið er sannarlega ekki auðvelt eftir langa – og nánast óslitna - valdatíð vinstri manna í borginni, en með öguðum rekstri og eðlilegri forgangsröðun er svigrúm til að lækka álögur á borgarbúa. Fólki er svo í sjálfsvald sett hvort það skellir sér til Tenerife – eða ekki.


Vísir, 25. apríl. 2022.

4 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page