top of page

Má hugmyndafræði borgarstjórnar kosta hvað sem er?


Helgi Áss Grétarsson skipar 7. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins


Amma mín, gallhörð sjálfstæðiskona, var kaupmaður á horninu þar sem hún rak hannyrðaverslun í meira en 30 ár. Hún kenndi mörgum með verkum sínum að hafa skyldi trú á einstaklingnum, treysta á mátt hans og meginn. Á þessum grunni sem og undir kjörorðinu „stétt með stétt“ skyldi byggja upp öflugt samfélag. Það hefur á margan hátt tekist.

Það eru rétt svo liðnir tveir mánuðir síðan ég hóf með virkum hætti að starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn með það að markmiði að gerast stjórnmálamaður. Á þeim stutta tíma hef ég lært margt um flokkinn. Um framtíðarhorfur flokksins kunna að vera skiptar skoðanir. Hins vegar er ég sannfærður um að helsti styrkleiki Sjálfstæðisflokksins felist í þeim mannauði sem fyrir flokkinn starfar.

Þegar ég tala um mannauð er ég fyrst og fremst að vísa til grasrótar flokksins, hins hefðbundna sjálfstæðismanns.


Breiðfylking borgaralegra afla

Síðustu vikur hafa veður verið válynd í kringum sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka sem fellur undir verkahring fjármálaráðherra, núverandi formanns Sjálfstæðisflokksins. Áhyggjur fólks af framkvæmd þess máls eru réttmætar, og mikilvægt að öllum steinum verði velt við að upplýsa hvað betur megi fara. Í jafn mikilvægu máli og sölu á ríkiseignum, skiptir verulegu máli að framkvæmdin sé hafin yfir allan vafa.

Eitt vil ég þó segja. Hér eftir sem og hingað til er Sjálfstæðisflokkurinn breiðfylking borgaralegra afla sem með verkum sínum veitir venjulegu fólki tækifæri til að bæta líf sitt. Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei verið flokkur sem einskorðar sig við hagsmuni hinna efnameiri. Tryggja þarf með öllum ráðum að það sé líka ára hans og ásýnd út á við.

Af þeim ástæðum er brýnt að kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins standi fyrir verkum sem skila ekki bara efnislegum og hlutlægum árangri, heldur einnig að framkvæmdin sé hafin yfir allan vafa.

Og að það líti þannig út gagnvart almenningi, hinum venjulega borgara, eins og amma mín var.


Borgarstjórnarkosningarnar í vor

Ég er svo heppinn að tilheyra öflugum hópi frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Meginstef þess hóps er að sýna með verkum sínum að hægt sé að leysa flókin viðfangsefni á borð við skipulags- og samgöngumál, fjármálastjórn borgarinnar, leikskólavandann og svo mætti áfram telja.

Nauðsynlegt er að þessi mál og fleiri hljóti góða umfjöllun í aðdraganda borgarstjórnarkosninga hinn 14. maí næstkomandi.

Við Sjálfstæðismenn erum samstilltir og fullir eftirvæntingar að ræða málefni borgarinnar við fólk og fyrirtæki. Enda af nógu að taka.


Visír, 31. mars. 2022.

9 views0 comments

Recent Posts

See All
bottom of page