Biðflokkana í biðflokk

Reykvíkingar búa við sífellda bið. Biðflokkarnir í meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur eru með biðstefnu á öllum sviðum. Bið í umferðinni, bið eftir leikskólaplássi, bið eftir viðhaldi gatna, gangstétta eða skólahúsnæðis. Bið eftir snjómokstri, þrifum og sorphirðu og almennri umhirðu. Bið eftir þjónustu hjá þjónustumiðstöðvum. Bið eftir hagkvæmari íbúðum. Bið eftir lausnum, bið eftir ábyrgð.

Vinsamlegast bíðið

Biðstefnan felst í að láta íbúa bíða. Því lengur og oftar, þess betra. Lítum á umferðina. Ljúka átti veigamiklum umferðarbótum á Miklubraut og Sæbraut 2-5 árum eftir undirritun fyrri samgöngusáttmálans, en í uppfærða sáttmálanum sömdu biðflokkarnir sérstaklega um að Reykvíkingar yrðu ávallt næstir í röðinni. Með því skyldi tryggja að íbúar bíði næstu tvo áratugi eftir aðgerðum vegna umferðarhnútanna. Við fækkun akreina á Suðurlandsbraut í nafni borgarlínu er fyrirséð að umferðin færist á þegar yfirfulla Sæbraut og biðtími í umferð í Ármúlahverfinu lengist að mun. Helsta forsenda borgarlínunnar er að samfélagið sitji pikkfast í venjulegri umferð og bíði og horfi á borgarlínuvagnana hreyfast án tafa. Biðstefna meirihlutans gengur líka út á að fólk bíði eftir götuþrifum og vegumhirðu þrátt fyrir að svifryk fari þá yfir heilsuverndarmörk.


Allir þjónustufulltrúar eru uppteknir

Hægt gengur að gera við mölbrotnar gangstéttir, tæma yfirfullar ruslatunnur eða gera við ljóslausa ljósastaura Allt þetta má bíða. Ráðhúsið er meðvitað um vandann og rætt er um að fara í verkið seinna, að loknum „hæfilegum“ biðtíma þegar íbúar hætta heimtufrekju og láta af fáránlegum kröfum. Að ætlast til að borgin salti tímanlega þegar von er á veðuraðstæðum sem breyta bundnu slitlagi í skautasvell passar engan veginn við biðstefnuna. Alvörufyrirhyggja í söltun sviptir fullt af fólki tækifærinu á að bíða langtímum saman á bráðamóttöku LSH vegna hálkuslysa. Svo má alltaf benda fólki á að bíða heima hjá sér þar til hálkan hverfur.


Við biðjumst velvirðingar á töfum

Skólahúsnæði borgarinnar var komið í verulega viðhaldsþörf fyrir rúmum áratug. En ekki var búið að bíða nóg eftir viðhaldsaðgerðum. Flest sveitarfélög nýttu þá uppganginn til endurbóta en í Reykjavík var skólastjórnendum sagt að biðja ekki um neitt nema lítið væri. Nú hefur öðrum hverjum leikskóla í borginni verið lokað vegna skemmda og myglu. Að láta starfsfólk bíða í ónýtu húsnæði sendir skýr skilaboð og flótti menntaðra úr leikskólakerfinu því engin furða. Vegna húsnæðisleysis og manneklu bíða þúsund fjölskyldur á biðlista eftir leikskólaplássi en á sama tíma slá biðflokkarnir á hjálparhendur einkaframtaksins sem hefur leitað samstarfs um opnun daggæsluúrræða og leikskóla.


Biðflokkarnir eru reyndir í afsökunum og útskýringum á því hvers vegna biðin er öllum fyrir bestu. Ekki mátti treysta fyrirtækjunum og einungis kaldrifjaðir foreldrar sætta sig ekki við biðina. Lausnin er alltaf sögð á leiðinni þótt biðin haldi áfram.


Símtalið þitt er okkur mikilvægt

Reyndar virðist í borgarkerfinu vera ákveðin samkeppni um hversu lengi hægt er að láta bíða eftir þjónustu og mörg svið og deildir borgarinnar tekið upp á því að láta ekki ná í sig símleiðis. Líklega er Heilbrigðiseftirlitið sigurvegari þar sem ekki er svarað í síma yfirleitt og sá sem vill ná símasambandi við stofnunina þarf að bíða ævina á enda.



Áætlaður biðtími er …

Reykjavík er ekki fátæk borg eða lítið sveitarfélag án bolmagns, heldur höfuðborg landsins, með miklar tekjur, sterka innviði frá gömlum tíma og hæft starfsfólk. Það sem skortir er ekki geta heldur forgangsröðun og pólitískur vilji. Íbúar eiga ekki að þurfa að vera þolinmóðir í áratugi. Þeir eiga ekki að þurfa að sætta sig við stöðnun. Þeir eiga rétt á borg sem virkar, ekki borg sem lofar að virka einhvern daginn eftir langa bið.


Góð stjórnun borgarinnar snýst um að ganga í verkin. Um lausnir og árangur. Um að leysa vandamál þegar þau koma upp. Biðflokkarnir hafa haft langan tíma til stefnu. Þeir hafa fengið umboð á grundvelli loforða en telja sjálfsagt að láta fólk bíða eftir efndum. Þeir hafa fengið fjármagn. Þeir hafa fengið tækifæri. Reykjavík þarf ekki lengri biðtíma og ekki fleiri skýrslur. Hún þarf borgarstjórn sem skilar árangri. Forystu sem þorir að framkvæma og setja íbúa í fyrsta sæti. Setjum biðflokkana í biðflokk í vor.


Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.