Það er svo margt sem hægt er að gera strax
Spurningar og svör
fyrir kjósendur
Hér finnur þú svör við því sem skiptir máli áður en þú kýst.
Á kjördag velur þú hvað gerist næst
Heldur Reykjavík áfram að bíða eða byrjum við að laga það sem skiptir máli strax?
Við viljum færa umræðuna frá almennum yfirlýsingum yfir í skýrar lausnir, settar fram á mannamáli. Markmiðið er að sýna hvað við ætlum að gera og byrja á því sem skiptir fólk mestu máli strax.
Ávarp oddvita X-D í Reykjavík
„Við þurfum að stokka spilin í borginni. Rjúfa kyrrstöðuna, koma málum á hreyfingu og stíga stór skref í átt að framförum. Strax á næsta kjörtímabili þarf líf borgaranna að verða auðveldara, hversdagurinn einfaldari og borgin skilvirkari. Það er nefnilega svo margt sem er hægt að gera strax.“ - Hildur Björnsdóttir
Við byrjum STRAX
Við setjum fram skýrar aðgerðir með skýrum tímamörkum.
Það sem er hægt að laga strax, gerum við strax. Hitt fylgir í kjölfarið.
100 daga verkefnalisti
Aðgerðir sem hægt er að hefja strax og klára hratt.
Þetta eru breytingarnar sem fólk finnur fyrir strax í daglegu lífi.
12 mánaða verkefnalisti
Verkefni sem krefjast undirbúnings en hægt er að klára innan árs.
Skýrar umbætur sem bæta þjónustu og einfalda borgina.
4 ára verkefnalisti
Stærri verkefni sem við byrjum strax á en taka lengri tíma að klára.
Uppbygging sem skiptir máli til lengri tíma.
Spurningar og svör fyrir kjósendur
Hér finnur þú svör við því sem skiptir máli áður en þú kýst.
Hver er minn kjörstaður?
Hér geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá í sveitarstjórnarkosningum sem verða haldnar þann 16. maí 2026.
→ Kynntu þér nánar hér.
Hver hefur kosningarétt í sveitarstjórnarkosningum?
Íslenskir ríkisborgarar sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
Norrænir ríkisborgarar (frá Danmörku, Finnlandi, Noregi eða Svíþjóð) sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
Erlendir ríkisborgarar sem hafa átt samfellda búsetu á Íslandi í að minnsta kosti 3 ár fyrir lok kjörfundar og eiga lögheimili í sveitarfélaginu.
Taktu þátt í baráttunni
Skráðu þig sem sjálfboðaliða og taktu þátt í baráttunni á þínum forsendum og vertu hluti af teyminu.
→ Kynntu þér nánar
Gerast styrktaraðili
Framlag þitt hjálpar okkur að ná til fleiri og halda herferðinni gangandi.
→ Kynntu þér nánar
Frambjóðendur X-D í Reykjavík
Fólk með reynslu, skýra sýn og vilja til að láta hlutina gerast strax.
Hildur Björnsdóttir
Fjögurra barna móðir úr Vesturbænum með bakgrunn í lögfræði og stjórnmálafræði og reynslu frá Íslandi og London. Hefur lengi verið virk í félagsmálum og tók sæti á lista Sjálfstæðisflokksins árið 2018. Brennur fyrir að einfalda líf fólks, bæta þjónustu og nýta fjármuni borgarbúa á ábyrgan hátt.
Bjarni E. Guðjónsson
Viðskiptafræðingur og forstöðumaður fyrirtækjasviðs hjá VÍS með bakgrunn úr atvinnumennsku í fótbolta hérlendis og erlendis. Hefur starfað í rekstri og viðskiptum og komið víða að íþróttahreyfingunni. Vill forgangsraða því sem skiptir borgarbúa máli og fara betur með almannafé.
Brynjar Þór Níelsson
Hæstaréttarlögmaður með áratuga reynslu og bakgrunn úr lögmannsstörfum og opinberri þjónustu. Var alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn og gegndi meðal annars formennsku í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Leggur áherslu á skýra hugsun, fagmennsku og ábyrga meðferð almannafjár í þágu borgarbúa.
Fréttir og greinar
Hér deilum við nýjustu fréttum, áherslum og því sem er að gerast í baráttunni.
Hvaða mál skipta máli og hvað við viljum laga í Reykjavík.
Fréttir og greinar
Það er svo margt sem hægt er að gera strax
Það er kominn tími til að stokka spilin í borginni. Rjúfa kyrrstöðuna, koma málum á hreyfingu og stíga stór skref í átt að framförum. Strax á næsta kjörtímabili er hægt að skapa borgurunum auðveldara líf, einfaldari hversdag og skilvirkari borg. Það er nefnilega svo margt sem hægt er að gera strax.
Það er svo margt sem hægt er að gera strax
Það er kominn tími til að stokka spilin í borginni. Rjúfa kyrrstöðuna, koma málum á hreyfingu og stíga stór skref í átt að framförum. Strax á næsta kjörtímabili er hægt að skapa borgurunum auðveldara líf, einfaldari hversdag og skilvirkari borg. Það er nefnilega svo margt sem hægt er að gera strax.
Reykjavík er Eiður Smári árið 1998
Knattspyrnuunnendur á miðjum aldri muna margir eftir skammri dvöl Eiðs Smára Guðjohnsen í KR árið 1998. Kappinn hafði verið meiddur um langa hríð, og líkamlegt ásigkomulag eftir því. Allir vissu að Eiður Smári væri allt of góður fyrir KR og íslensku deildina, en hann hafði verið afskrifaður erlendis eftir langvinn meiðsli.
Hraðar á milli staða
Það er lífsgæðamál að bæta samgöngur í Reykjavík. Sjálfstæðisflokkurinn vill greiða fyrir umferð svo fólk komist hraðar á milli staða. Tryggja þarf frelsi og val um fjölbreyttar samgöngur og láta af stjórnlyndi í garð borgaranna. Einn fararmáti á ekki að útiloka annan – framtíðin á að fela í sér valfrelsi og sveigjanleika.
Hafðu samband
Við viljum heyra frá þér. Ef þú ert með spurningar, ábendingar eða vilt ræða málin, hafðu samband og við svörum eins fljótt og við getum.
Netfang: reykjavik@xd.is
Fylgdu okkur á samfélagsmiðlum
Hafa samband - Forsíða
Takk fyrir að hafa samband
Eitthvað fór á mis. Prófaðu endilega aftur.
















