Fréttir og greinar

Hér deilum við nýjustu fréttum, áherslum og því sem er að gerast í baráttunni. Hvaða mál skipta máli og hvað við viljum laga í Reykjavík.


Það er svo margt sem hægt er að gera strax

Það er kominn tími til að stokka spilin í borginni. Rjúfa kyrrstöðuna, koma málum á hreyfingu og stíga stór skref í átt að framförum. Strax á næsta kjörtímabili er hægt að skapa borgurunum auðveldara líf, einfaldari hversdag og skilvirkari borg. Það er nefnilega svo margt sem hægt er að gera strax.

Reykjavík er Eiður Smári árið 1998

Knattspyrnuunnendur á miðjum aldri muna margir eftir skammri dvöl Eiðs Smára Guðjohnsen í KR árið 1998. Kappinn hafði verið meiddur um langa hríð, og líkamlegt ásigkomulag eftir því. Allir vissu að Eiður Smári væri allt of góður fyrir KR og íslensku deildina, en hann hafði verið afskrifaður erlendis eftir langvinn meiðsli.

Hraðar á milli staða

Það er lífsgæðamál að bæta samgöngur í Reykjavík. Sjálfstæðisflokkurinn vill greiða fyrir umferð svo fólk komist hraðar á milli staða. Tryggja þarf frelsi og val um fjölbreyttar samgöngur og láta af stjórnlyndi í garð borgaranna. Einn fararmáti á ekki að útiloka annan – framtíðin á að fela í sér valfrelsi og sveigjanleika.

Biðflokkana í biðflokk

Reykvíkingar búa við sífellda bið. Biðflokkarnir í meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur eru með biðstefnu á öllum sviðum. Bið í umferðinni, bið eftir leikskólaplássi, bið eftir viðhaldi gatna, gangstétta eða skólahúsnæðis. Bið eftir snjómokstri, þrifum og sorphirðu og almennri umhirðu. Bið eftir þjónustu hjá þjónustumiðstöðvum. Bið eftir hagkvæmari íbúðum. Bið eftir lausnum, bið eftir ábyrgð.

Borg sem leyfir öllum að blómstra

Gæði samfélaga fara eftir því hvort fólk fær að þroskast og blómstra á sínum forsendum, sama hvernig það er, lítur út eða hagar sér. Góð borg leyfir börnunum að finna sinn styrk, unglingunum að finna sinn farveg og sinnir hinum fullorðnu með góðri þjónustu og lægri álögum, sérstaklega þegar eitthvað bjátar á í lífinu.

Borgin sem gleymdi hlutverki sínu

Það á ekki að vera flókið að reka sveitarfélag. Hlutverk þess er skýrt. Sveitarfélög eiga að sinna leik- og grunnskólum, skipulagi, samgöngum og grunninnviðum. Þetta eru verkefni sem skipta íbúa mestu máli í daglegu lífi. Reykjavík hefur þó í vaxandi mæli fjarlægst þennan kjarna. Stjórnsýslan hefur þanist út, starfstitlum og verkefnum hefur fjölgað, en á sama tíma hefur yfirsýn minnkað, ábyrgð orðið óljósari og ákvarðanataka þyngri og hægari.