Hraðar á milli staða

Það er lífsgæðamál að bæta samgöngur í Reykjavík. Sjálfstæðisflokkurinn vill greiða fyrir umferð svo fólk komist hraðar á milli staða. Tryggja þarf frelsi og val um fjölbreyttar samgöngur og láta af stjórnlyndi í garð borgaranna. Einn fararmáti á ekki að útiloka annan – framtíðin á að fela í sér valfrelsi og sveigjanleika.

Ný forgangsröðun

Endurskoða þarf fjármögnun og forgangsröðun verkefna í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Sjálfstæðisflokkurinn hafnar flýti- og umferðargjöldum á höfuðborgarsvæðinu og kallar eftir því að framlag ríkisins verði fjármagnað með öðrum hætti.


Tryggja þarf að brýnustu og arðbærustu verkefni sáttmálans njóti forgangs. Flýta þarf mislægum gatnamótum við Sprengisand, Miklubrautargöngum og innleiðingu snjallra ljósastýringa. Samhliða þarf að afturkalla þrengingar við Höfðabakka, bæta umferðaröryggi á fjölförnum gatnamótum og tryggja nauðsynlegt viðhald á samgönguinnviðum borgarinnar.


Tryggja þarf greiðar og öruggar leiðir fyrir gangandi og hjólandi í Reykjavík og börn þurfa ávallt að eiga örugga gönguleið til skóla.


Borgarlínu siglt í strand

Sjálfstæðisflokkurinn telur meirihlutann í Reykjavík hafa siglt borgarlínu í strand og hyggst endurskoða verkefnið frá grunni. Innleitt verði nýtt hagkvæmt hraðvagnakerfi á sérakreinum sem ekki þrengir að almennri umferð, í samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Ferðir verði tíðari, biðskýli betri, þjónustan öflugri og dregið úr áherslu á miðjusetningu sérakreina. Sjálfstæðisflokkurinn hafnar yfirvofandi þrengingum á almennri umferð, svo sem á Suðurlandsbraut. Markmið hins nýja hraðvagnakerfis verði að gera almenningssamgöngur að raunhæfum valkosti fyrir fleiri.


Kollvörpun bílastæðastefnu

Sjálfstæðisflokkurinn hyggst kollvarpa bílastæðastefnu borgarinnar svo hún mæti betur þörfum íbúa og atvinnulífs. Vinda þarf ofan af breytingum á bílastæðagjöldum í miðborg sem leiddu til þess að gjaldsvæði voru stækkuð, gjaldskrár voru hækkaðar og gjaldskyldutími lengdur. Hefur gjaldskyldan orðið að íþyngjandi miðborgarskatti sem fælir landsmenn frá því að sækja verslun og þjónustu á þetta öfluga markaðssvæði. Samhliða þarf að endurskoða íbúakortin og innleiða bílastæðakort fyrir atvinnurekendur.


Sjálfstæðisflokkurinn hyggst fella brott íþyngjandi kvaðir um fjölda bílastæða við nýbyggingar. Jafnframt þarf að falla frá tuttuguföldun gatnagerðargjalda á bílakjallara og skapa hvata fyrir uppbyggingaraðila að koma bílastæðum fyrir neðanjarðar.


Bætt skipulag greiði fyrir umferð

Ferðatími fólks á höfuðborgarsvæðinu getur lengst um 30 mínútur á morgnana á helstu álagspunktum þegar framhalds- og háskólar hefjast aftur á haustin. Sjálfstæðisflokkurinn vill hefja samtal við atvinnulíf, stofnanir og menntastofnanir um breytilegt upphaf vinnudags og kennsludags svo ná megi fram betri dreifingu umferðarálags. Jafnframt mætti ná auknu jafnvægi á umferðarstrauma með jafnara borgarskipulagi og fjölgun vinnustaða í austurborginni.


Sundabraut og jarðgöng

Sjálfstæðisflokkurinn vill hefja uppbyggingu Sundabrautar strax. Það er þjóðhagslega arðbær samgönguframkvæmd og mikilvæg tenging fyrir fjölmörg hverfi í Reykjavík. Brautin mun efla Reykjavík sem höfuðborg allra landsmanna, styrkja samkeppnishæfni borgarinnar og stöðu almannavarna. Útfærslu þarf að vinna í sátt við íbúa og atvinnulíf en Sjálfstæðisflokkurinn aðhyllist gangalausnir.


Sjálfstæðisflokkurinn vill jafnframt að nýjum stofnæðum höfuðborgarsvæðisins verði komið fyrir neðanjarðar í jarðgöngum í einkaframkvæmd þar sem horft verði til reynslunnar af Hvalfjarðargöngum. Það mun létta umtalsvert á umferð ofanjarðar, auka lífsgæði og draga úr raski ofanjarðar á framkvæmdatíma. Með jarðgöngum næst betri nýting landrýmis, aukin umferðarrýmd, meira næði og aukin loftgæði.


Við erum klár!

Árið 2019 var áætlað að tæplega níu milljónum klukkustunda yrði sóað í umferðartafir innan höfuðborgarinnar árlega. Umferðartafir á annatíma höfðu aukist um nærri 50% á örfáum árum. Þetta sýndu niðurstöður umferðarlíkans VSÓ og mælingar Vegagerðarinnar. Þessar tafir samsvöruðu um 40 klukkustundum – eða heilli vinnuviku – á hvern höfuðborgarbúa árlega. Síðastliðin ár hefur ástandið einungis versnað.


Það er löngu tímabært að ráðast í stórfelldar samgöngubætur í höfuðborginni. Við erum klár í verkefnið en til þess þurfum við ykkar stuðning. Án kraftmikils Sjálfstæðisflokks verða engar breytingar.