Lorem Ipsum is simply dummy
Lorem Ipsum is simply dummy
Loreum Ipsum is simply dummy text of the printing and typesetting industry.
Manifesto STRAX-D
Það er svo margt sem hægt er að gera strax
Reykjavík hefur alla burði til að verða borg tækifæranna, þar sem fjölskyldur, atvinnulíf, menntun og frelsi einstaklinga mynda traustan grunn til bættra lífskjara. Varðveita þarf sérkenni Reykjavíkur en gæta þess að borgin þróist í takt við aðrar vestrænar borgir – og verði ekki undir í samkeppni um ungt fólk og atgervi.
Sjálfstæðisflokkurinn vill skapa borg sem virkar fyrir fólk og fyrirtæki. Höfuðborg, þar sem fólk getur leitað hamingjunnar á eigin forsendum. Við viljum borgarumhverfi sem setur fjölskyldur í forgang og velferðarþjónustu sem tryggir rétt sérhvers einstaklings til að lifa með reisn. Við viljum borgarumhverfi sem laðar að sér hæfileikafólk með úrvali atvinnutækifæra, spennandi búsetukostum og fjölbreyttum samgöngukostum. Við viljum borg sem ryður veginn fyrir þá sem vilja sækja fram og styður við hugmyndaauðgi og verðmætasköpun. Höfuðborg sem byggist á frjálsum valkostum, jöfnum tækifærum, frjálsu framtaki og hagkvæmum rekstri.
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík vill ábyrga fjármálastjórn, lágar álögur, skilvirkt regluverk og öfluga grunnþjónustu þar sem þjónusta er skipulögð í þágu borgarbúa, ekki kerfa.
Komum fólki hraðar milli staða
Sjálfstæðisflokkurinn vill greiða fyrir umferð svo fólk komist hraðar á milli staða. Tryggja þarf frelsi og val um fjölbreyttar samgöngur og láta af stjórnlyndi í garð borgaranna. Einn fararmáti á ekki að útiloka annan - framtíðin á að fela í sér valfrelsi og sveigjanleika.
Sjálfstæðisflokkurinn vill hefja uppbyggingu Sundabrautar strax. Það er þjóðhagslega arðbær samgönguframkvæmd og mikilvæg tenging fyrir fjölmörg hverfi í Reykjavík ásamt því að efla Reykjavík sem höfuðborg allra landsmanna og styrkja stöðu almannavarna. Útfærslu þarf að vinna í sátt við íbúa og atvinnulíf.
Endurskoða þarf fjármögnun og forgangsröðun verkefna í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Sjálfstæðisflokkurinn hafnar flýti- og umferðargjöldum á höfuðborgarsvæðinu og kallar eftir því að framlag ríkisins verði fjármagnað með öðrum hætti. Forgangsraða þarf samgönguverkefnum þannig að brýnustu og arðbærustu verkefnin njóti forgangs. Gæta þarf að tímaáætlunum framkvæmda og ráðdeild hvað varðar framkvæmdakostnað. Flýta þarf mislægum gatnamótum við Sprengisand, Miklubrautargöngum og innleiðingu snjallra ljósastýringa. Afturkalla þarf þrengingar við Höfðabakka, bæta umferðaröryggi á fjölförnum gatnamótum og tryggja nauðsynlegt viðhald á samgönguinnviðum borgarinnar.
Sjálfstæðisflokkurinn telur Borgarlínu verkefnið komið út í skurð og ætlar að endurskoða það frá grunni. Innleitt verði nýtt hagkvæmt hraðvagnakerfi á sérakreinum sem ekki þrengir að almennri umferð, í samstarfi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Ferðir verði tíðari, biðskýli betri, þjónustan öflugri og dregið úr áherslu á miðjusetningu sérakreina. Yfirvofandi þrengingum á almennri umferð er hafnað, svo sem á Suðurlandsbraut. Tæknilausnir og gervigreind verði nýtt til að afla gagna um notkun almenningsvagna á næstu árum og gögnin nýtt við þróun þjónustunnar. Markmið hins nýja hraðvagnakerfis verði að gera almenningssamgöngur að raunhæfum valkosti fyrir fleiri.
Við viljum tryggja öruggar leiðir fyrir gangandi og hjólandi og fjölga upphituðum stígum. Tengingar fyrir gangandi og hjólandi verði bættar um alla borg. Undirgöngum og göngubrúm verði komið fyrir á gönguleiðum barna sem þvera fjölfarna vegi.
Kollvarpa þarf bílastæðastefnu borgarinnar svo hún mæti betur þörfum íbúa og atvinnulífs. Falla þarf frá tuttuguföldun gatnagerðargjalda á bílakjallara. Jafnframt þarf að vinda ofan af breytingum á bílastæðagjöldum í miðborg sem leiddu til þess að gjaldsvæði voru stækkuð, gjaldskrár voru hækkaðar og gjaldskyldutími lengdur. Hefur gjaldskyldan orðið að íþyngjandi miðborgarskatti sem fælir landsmenn frá því að sækja verslun og þjónustu á þetta öfluga markaðssvæði. Jafnframt þarf að endurskoða gjaldskyldu á íbúasvæðum, bæta íbúakortin, auka sveigjanleika og innleiða bílastæðakort fyrir atvinnurekendur.
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík vill að nýjum stofnæðum höfuðborgarsvæðisins verði komið fyrir neðanjarðar í jarðgöngum í einkaframkvæmd þar sem horft verði til reynslunnar af Hvalfjarðargöngum. Það mun létta umtalsvert á umferð ofanjarðar, auka lífsgæði og draga úr raski ofanjarðar á framkvæmdatíma. Með jarðgöngum næst betri nýting landrýmis, aukin umferðarrýmd, meira næði og betri loftgæði.
Samhliða ofangreindum atriðum má bæta umferðarflæði á álagstímum með samtali við atvinnulíf, stofnanir og menntastofnanir um breytilegt upphaf vinnudags og kennsludags. Jafnframt mætti ná auknu jafnvægi á umferðarstrauma með fjölgun vinnustaða í austurborginni.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur ríka áherslu á að hraða orkuskiptum í samgöngum á sjó, lofti og landi. Tryggja þarf stórbætt aðgengi í borgarlandinu að hreinni íslenskri orku fyrir rafbílanotendur, í samstarfi við aðila á markaði.
Rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar verði tryggt í Vatnsmýri meðan annar betri staður hefur ekki fundist. Sundahöfn verði áfram stærsta inn- og útflutningshöfn þjóðarinnar.
Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að tryggja öflugan og skilvirkan snjómokstur og vetrarþjónustu á götum og stígum borgarinnar. Götur verði sópaðar og hreinsaðar reglulega yfir árið í samstarfi við Vegagerðina svo draga megi úr svifryksmengun.
- Frelsi og val um fjölbreyttar samgöngur
- Ráðist verði í uppbyggingu Sundabrautar strax
- Þrengingum á Suðurlandsbraut er hafnað
- Gatnamót við Sprengisand gerð mislæg án tafar
- Miklubrautargöngum verði flýtt
- Snjallar ljósastýringar um alla borg
- Þrengingar á gatnamótum við Höfðabakka afturkallaðar
- Bílastæðareglur endurskoðaðar og gjaldskyldu breytt í miðborg
- Fallið frá tuttuguföldun gatnagerðargjalda bílakjallara
- Nýtt hraðvagnakerfi þróað sem ekki þrengir að umferð
- Öruggar göngu- og hjólaleiðir
- Upphituðum stígum verði fjölgað í borginni
- Nýjum stofnbrautum komið fyrir neðanjarðar í jarðgöngum
- Jafnvægi náist á umferðarstrauma með fjölgun vinnustaða í austurborg
- Breytilegs upphafs vinnudags á stærstu vinnustöðum borgarinnar
- Orkuskiptum í samgöngum verði hraðað
- Flugvöllurinn áfram í Vatnsmýri
- Sundahöfn áfram stærsta inn- og útflutningshöfn þjóðarinnar
- Snjómokstur verði bættur fyrir alla fararmáta
- Götur verði sópaðar og hreinsaðar reglulega
Heilbrigður húsnæðismarkaður á grunni séreignastefnu
Eign á að vera á færi allra. Séreignastefnan er ein af grunnundirstöðum sjálfstæðisstefnunnar. Sjálfstæðisflokkurinn vill auðvelda öllu fólki að eignast eigið heimili enda húsnæði ein stærsta efnahagslega breytan í rekstri heimilanna og besta leiðin til að tryggja fólki öruggt húsnæði.
Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja heilbrigðan húsnæðismarkað í Reykjavík með stórauknu lóðaframboði. Leggja þarf áherslu á uppbyggingu nýrra byggingarsvæða samfara hóflegri þéttingu byggðar í samræmi við þá byggð sem fyrir er og að hún sé framkvæmd þannig að sem minnst röskun verði á lífsgæðum íbúa sem fyrir eru. Skipuleggja þarf ný hverfi með áherslu á blandaða byggð, svo sem í Geldinganesi, Gufunesi, Úlfarsárdal, Kjalarnesi, Keldnalandi og Granda. Sjálfstæðisflokkurinn styður útvíkkun vaxtarmarka höfuðborgarsvæðisins.
Sjálfstæðisflokkurinn vill treysta markaðnum til að þróa íbúðir á húsnæðismarkaði sem eftirspurn er eftir. Gerðir verði uppbyggingarsamningar við húsbyggjendur sem tryggi framkvæmdahraða og 12 mánaða greiðslufrest af byggingarréttargjaldi. Íþyngjandi kvaðir á húsnæðisuppbyggingu verði felldar brott enda hafa þær aukið byggingakostnað og hækkað húsnæðisverð, svo sem kvöð um verslunarrými í nýjum íbúðarhúsum, tuttuguföldun gatnagerðargjalds og þröngar takmarkanir á bílastæðum.
Umhverfis- og skipulagssvið verði þjónustuvætt og möguleikar á útvistun verkefna skoðaðir. Tryggðar verði hagkvæmar stafrænar lausnir, nýsköpun í stjórnsýslu skipulags- og byggingamála, lægri álögur og sveigjanlegra regluverk fyrir byggingaiðnað í Reykjavík. Afgreiðslufrestur erinda verði aldrei lengri en 30 dagar.
- Heilbrigður húsnæðismarkaður á grunni séreignastefnu.
- Markaðurinn fái aukið frelsi til að þróa íbúðir fyrir húsnæðismarkaðinn.
- Íþyngjandi kvaðir og gjöld felld niður.
- Uppbyggingarsamningar og sveigjanlegri greiðsluskilmálar af byggingarrétti.
- Ný hverfi skipulögð í Geldinganesi, Gufunesi, Úlfarsárdal, Kjalarnesi, Keldnalandi og Granda.
- Umhverfis- og skipulagssvið verði þjónustuvætt.
- Afgreiðslufrestur aldrei lengri en 30 dagar.
Lifandi borgarhverfi
Sjálfstæðisflokkurinn vill að borgin verði endurskipulögð á forsendum hverfanna – á grundvelli sérstöðu þeirra og styrkleika. Borgarhverfi verði skipulögð með það fyrir augum að unnt verði að nálgast helstu verslun og þjónustu í 15 mínútna göngufæri. Forsenda 15 mínútna hverfa er blönduð byggð hvar íbúðarhúsnæði, vinnustaðir og þjónusta eru í nálægð hvert við annað. Fjölgun vinnustaða í austurhluta borgarinnar mun ýta undir þessa þróun og hafa jákvæð áhrif á samgöngur í borginni.
Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að hverfi borgarinnar séu barnvæn. Fjölskyldum bjóðist öflugir grunnskólar, leikskóla- eða daggæsluþjónusta og íþrótta- og tómstundastarf nálægt heimili. Jafnframt verði hugað vel að lýðheilsu, aðgengi að grænum svæðum og tækifærum til hreyfingar og útivistar innan borgarhverfa.
- Borgarhverfin haldi sérstöðu sinni og styrkleikum
- Borgarhverfi verði gerð að 15 mínútna hverfum
- Þjónusta við barnafjölskyldur innan hverfa
- Fjölgun vinnustaða í austurborg
- Aðgengi að útivist og grænum svæðum tryggt
Framúrskarandi skólakerfi
Menntun og uppvöxtur barna er burðarstólpi þjóðfélagsins til framtíðar. Mikilvægt er að vel sé búið að uppvaxtarárum hvers einstaklings. Síðastliðna áratugi hefur átt sér stað varasöm þróun í skólamálum hérlendis en íslenskum nemendum gengur nú sífellt verr í alþjóðlegum samanburði. Rík áhersla hefur verið á færri samræmdar mælingar, minni kröfur gerðar til nemenda og samkeppni í skólastarfi litin hornauga. Það er löngu tímabært að snúa við þessari óheillaþróun í menntamálum þjóðarinnar – en til þess þurfum við aðgengileg gögn, mælanleg markmið og skýra mælikvarða.
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík ætlar sér að vera leiðandi afl í menntamálum barna og grípa til tafarlausra aðgerða til þess að bregðast við vandanum, sem er fjölþættur. Jöfn tækifæri eru leiðarstef sjálfstæðisstefnunnar og í því felst m.a. að hvorki efnahagur né félagsleg staða hafi áhrif á möguleika barna - að leita hæfileika sinna og skapa úr þeim tækifæri og verðmæti. Það byggist á trú okkar á einstaklinginn og samfélag þar sem enginn er skilinn eftir.
Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að samræmt mat verði framkvæmt í öllum árgöngum grunnskólans. Niðurstöður úr slíku mati varpa ljósi á hvernig nemendum hefur tekist að tileinka sér sem flesta þætti aðalnámskrár en matið tryggir jafnframt aukið jafnræði og gagnsærri endurgjöf fyrir nemendur, foreldra, skóla og menntayfirvöld. Einnig getur slíkt mat varpað ljósi á það hvaða skólar þurfa aukinn stuðning frá borgaryfirvöldum. Sjálfstæðisflokkurinn vill fara þess á leit við mennta- og barnamálaráðuneytið að námsmat verði aftur byggt á talnakvarðanum 1-10 enda fyrirkomulag sem reynst hefur skiljanlegra fyrir kennara, foreldra og nemendur. Námsmat í núverandi námskrá, byggt á litakóðum, táknum eða bókstöfum, er illskiljanlegt og mikil eftirspurn eftir breytingum.
Við viljum tryggja jöfn opinber framlög með öllum börnum í skólakerfinu óháð rekstrarformi þeirra skóla sem þau sækja. Framlögin eru réttur barnanna og tryggja þarf börnum og foreldrum þeirra frelsið til að velja skóla við hæfi. Fjölga þarf valkostum í skólakerfinu fyrir börn með sérþarfir. Tryggja þarf heilnæmt og nútímavætt skólahúsnæði um alla borg.
Sjálfstæðisflokkurinn telur nauðsynlegt að auka hreyfingu reykvískra skólabarna og bæta gæði skólamáltíða. Þá leggur Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík áherslu á tveggja ára tilraunaverkefni með símafrí í grunnskólum Reykjavíkur svo hægt verði að leggja mat á áhrif þess á líðan og námsárangur barna. Skólastarf þarf að taka mið af fjórðu iðnbyltingunni og þeim framtíðar veruleika sem mætir börnunum okkar, með aukinni áherslu á STEAM fög í grunnskólum borgarinnar.
Tryggja þarf að börn sem flytja til landsins og ekki tala íslensku, taki sín fyrstu skref í grunnskólagöngunni í móttökudeild þar sem sérstök áhersla er á íslensku og íslenskt samfélag. Munurinn hérlendis á PISA-einkunnum nemenda með innflytjendabakgrunn og innfæddra nemenda er einn sá mesti innan OECD. Meira en helming innflytjenda nemenda skortir lesskilning til að geta haldið áfram námi eða farið út á vinnumarkað. Skólakerfið þarf augljóslega að mæta þessum nemendahópi betur en móttökudeildir gætu reynst brú í takmarkaðan tíma áður en nemendurnir öðlast færni til að hefja nám í almennum bekk.
Reykjavíkurborg á að taka forystu í skólamálum á landsvísu. Borgin setji sér það markmið að íslenskt skólakerfi verða meðal þeirra fremstu í Evrópu hvað varðar námsárangur og líðan barna. Nemendur geti lesið sér til gagns að lokinni tíu ára skólagöngu. Unnið verði með gögn og mælanleg markmið í auknum mæli í skólastarfi svo hægt verði að meta árangur.
- Samræmt mat verði innleitt í alla árganga grunnskólans
- Einkunnir á kvarðanum 1-10
- Símafrí í grunnskólum
- Móttökudeildir í grunnskólum fyrir börn sem flytja hingað til lands en tala ekki íslensku.
- Íslenskt skólakerfi verði meðal þeirra fremstu innan OECD
- Jöfn opinber framlög í leik- og grunnskóla óháð rekstrarformi
- Aukið vægi STEAM greina í skólastarfi
- Heilnæmt skólahúsnæði tryggt
- Allir nemendur geti lesið sér til gagns að lokinni grunnskólagöngu
Áreiðanleg þjónusta í kjölfar fæðingarorlofs
Fjölskyldan er grunneining samfélagsins og kerfi borgarinnar þurfa að taka mið af henni. Sjálfstæðisflokkurinn vill setja fjölskyldumálin í forgang og telur lausn leikskóla- og daggæsluvandans vera bæði forgangsmál og mikilvægt jafnréttismál. Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík hugnast ekki hin svokallaða Reykjavíkurleið í leikskólamálum enda hefur flokkurinn ekki gefist upp gagnvart því verkefni að bjóða fjölskyldum í Reykjavík heilsdags þjónustu.
Við viljum tryggja fjölskyldum í Reykjavík fjölbreyttar lausnir í kjölfar fæðingarorlofs. Við viljum efla leikskóla Reykjavíkur og bæta skilyrði fyrir bæði börn og starfsfólk. Við viljum styðja við sjálfstætt starfandi leikskóla og þá vinnustaði sem vilja opna leikskóla eða daggæslu fyrir börn sinna starfsmanna. Við viljum jafnframt innleiða dagheimili fyrir börn á aldrinum 12 mánaða til 30 mánaða sem myndu tryggja yngstu börnunum öruggt og þroskavænlegt umhverfi og undirbúa þau undir leikskólagönguna. Þeim fjölskyldum sem kjósa að vera lengur heima með börn sín yrðu boðnar heimgreiðslur í allt að 12 mánuði.
Við viljum ráðast í uppbyggingu leikskólahúsnæðis í samstarfi við einkaaðila þar sem áhersla verður á vandað umhverfi fyrir börn og starfsfólk. Huga þarf betur að viðhaldi leikskólahúsnæðis í borginni. Við viljum ráðast í átak svo gera megi leikskóla borgarinnar að eftirsóknarverðum vinnustöðum. Bregðast þarf við 10% veikindahlutföllum í leikskólum borgarinnar.
Við viljum jafnframt að jöfn opinber framlög fylgi hverju barni í leikskólakerfinu, óháð rekstrarformi þeirra leikskóla sem þau sækja. Framlögin eru réttur barnanna.
Ráðast þarf í átak sem felur í sér að koma öllu starfsfólki leikskóla á B2 stig í íslensku.
- Á kjörtímabilinu bjóðist öllum fjölskyldum lausnir að loknu fæðingarorlofi
- Uppbygging leikskólahúsnæðis í samstarfi við einkaaðila.
- Samstarf um daggæslu eða leikskóla á stærri vinnustöðum
- Innleiðing dagheimila í Reykjavík fyrir börn á aldrinum 12 til 30 mánaða
- Heimgreiðslur fyrir þau sem kjósa að vera heima að loknu fæðingarorlofi.
- Jöfn opinber framlög í leik- og grunnskóla óháð rekstrarformi
- Íslenskukennsla fyrir starfsfólk leikskóla og dagheimila
Íþrótta- og tómstundamál
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík leggur áherslu á öflugt íþróttastarf í Reykjavík og að öllum börnum verði tryggð jöfn tækifæri til íþrótta- og tómstundaiðkunar í borginni. Brýnt er að forgangsraða fjárveitingum til íþrótta - og æskulýðsmála til að styðja við lykilhlutverk íþrótta og tómstunda í uppeldi, forvörnum, lýðheilsu og félagsþroska barna og ungmenna. Íþrótta- og æskulýðsstarf er mikilvægur þáttur í því að stuðla að jöfnum tækifærum og eflingu félagslegra tengsla barna með fjölbreyttan bakgrunn svo sem vegna uppruna, félagsstöðu og búsetu. Nauðsynlegt er að tryggja jafnræði meðal íþróttafélaga og íþróttagreina. Þannig verða tækifæri barna í öllum hverfum borgarinnar hámörkuð.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á aukna samfellu milli skóla, frístundar, íþrótta, tómstunda og listnáms barna svo einfalda megi líf fjölskyldunnar. Styðja þarf betur við þátttöku barna af erlendum uppruna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi, ekki síst með betri nýtingu frístundakorts í huga. Leggja þarf áherslu á að kynna íþrótta- og tómstundastarf í grunnskólum borgarinnar. Samstarf og samtal milli grunnskóla, frístundamiðstöðva, íþróttafélaga og foreldrasamfélags þarf að auka með þarfir nemenda í fyrirrúmi. Sjálfstæðisflokkurinn vill hleypa af stað verkefninu “allir æfa” þar sem áhersla er lögð á að öll börn í Reykjavík séu í skipulögðu íþrótta- eða tómstundastarfi.This is t
Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að Reykjavíkurborg verði liðsmaður íþróttafélaganna og samstarf borgarinnar við íþróttafélögin verði bætt. Styrkja þarf uppbyggingu afreksstarfs í íþróttum með það að markmiði að ná sambærilegum árangri og best gerist hjá nágrannaþjóðum okkar. Undirstaða þess er að hlúa að íþróttum barna og ungmenna, vanda til aðstöðu og þjálfunar. Mikilvægt er að börn og ungmenni hafi jafnt aðgengi að fjölbreyttum íþróttum og tómstundum. Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja yngstu iðkendum tækifæri til að prófa margar íþróttir og þannig finna sína íþrótt. Markvisst verði unnið að uppbyggingu þjóðarleikvangs- og hallar, í samstarfi við einkaaðila, til að bæta aðstöðu og möguleika til að halda alþjóðlegar keppnir og kappleiki.
Sundlaugar borgarinnar eru miðstöðvar lýðheilsu í borginni og geta spilað mikilvægt hlutverk hvað forvarnir varðar. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík telur brýnt að tryggja gott aðgengi að þeim, rýmri opnunartíma og reglulegt viðhald. Partýsund verði skipulagt einu sinni í mánuði þar sem ein sundlaug er opin til miðnættis. Unnið verði í samstarfi við Kópavogsbæ að uppbyggingu sundlaugar í Fossvogsdal. Viðey verði skipulögð sem öflugt útivistarsvæði meðal annars með golfvelli, gönguleiðum og leiksvæðum. Aðgengi að íþrótta- og skólahúsnæði borgarinnar verði aukið svo stuðla megi að virku íþrótta- og tómstundastarfi í hverfum borgarinnar.
- Uppbygging íþróttamannvirkja verði í þágu barna og ungmenna.
- Aukin samfella milli skóla, frístundar, tómstunda og listnáms.
- Uppbygging afreksstarfs styrkt.
- Opnunartími sundlauga rýmkaður.
- Sundlaug í Fossvogsdal í samstarfi við Kópavog.
- Útivistarsvæði með golfvelli í Viðey.
Velferð á öllum æviskeiðum
Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja velferðarþjónustu sem eykur lífsgæði, stuðlar að virkni og tryggir öllum borgarbúum möguleikann á að lifa með reisn. Með stuðningi við einkaframtakið má fjölga valkostum og mæta margbreytilegum þörfum. Við viljum stuðla að heilsueflandi borgarumhverfi og verndun grænna svæða, svo tryggja megi öllum jöfn tækifæri og fjölbreyttar leiðir til að ástunda heilbrigðan lífstíl. Lögð skal sérstök áhersla á að öll skipulagsvinna í Reykjavíkurborg taki mið af lýðheilsu sjónarmiðum.h
Leggja þarf ríka áherslu á heilsueflandi líferni, bæði andlegt og líkamlegt, með heilnæmu fæði og reglubundinni hreyfingu. Slík nálgun á að endurspeglast í allri starfsemi skóla og starfsstöðva sem veita íbúum borgarinnar þjónustu.
Það á að vera gott að eldast í Reykjavík en hækkandi lífaldur kallar á breyttar áherslur gagnvart eldra fólki. Gera þarf fólki kleift að búa heima svo lengi sem það kýs. Forsenda þess er öflug og samræmd heimaþjónustu og heimahjúkrun – ásamt persónulegri og skilvirkri þjónustu. Borgin þarf að tryggja nægt lóðaframboð fyrir einkaframtak að hefja umfangsmikla uppbyggingu fjölbreyttra búsetukosta fyrir eldri kynslóðir – til að mynda svokallaðra lífsgæðakjarna eða íbúða á vegum hagsmunasamtaka eldra fólks. Mikilvægt er að bílastæði fylgi slíkum íbúðum. Samhliða þarf að gera stórátak í byggingu hjúkrunarheimila í samstarfi við ríkið. Velferðartækni ætti að vera mikilvægur þáttur í öryggi og bættri aðstöðu í heimahúsum eldra fólks.
Sjálfstæðisflokkurinn vill að tekjumörk vegna afslátta af fasteignasköttum þeirra sem eru 67 ára og eldri verði hækkuð svo stærri hópur njóti afsláttarkjara. Stuðla þarf að heilsueflingu og virkni eldra fólks. Sjálfstæðisflokkurinn vill innleiða 4.000 kr. tekjutengdan mánaðarlegan frístundastyrk og að frítt verði á skíði fyrir 67 ára og eldri.
Við viljum tryggja samfellu í geðheilbrigðisþjónustu við börn. Biðlistar eru langir og einstaklingar falla gjarnan milli skips og bryggju innan kerfisins. Auknar forvarnir og auðveldur aðgangur að sérfræðiþjónustu strax í leik- og grunnskóla gætu skipt sköpum. Nýta þarf tæknilausnir eftir fremsta megni svo bæta með aðgengi að þjónustunni.
Fólk með fötlun er fjölbreyttur hópur með fjölbreyttar þarfir sem þjónusta þarf á einstaklingsgrundvelli. Tryggja þarf að fatlað fólk geti sótt sér nám og stundað vinnu og aðrar tómstundir. e text ar
- Lóðir fyrir húsnæðisuppbyggingu eldri borgara
- Hækkun tekjumarka vegna afslátta af fasteignasköttum 67 ára og eldri
- Heilsuefling eldri borgara með frístundakorti og frítt í Bláfjöll
- Fjölbreytt rekstrarform í velferðarþjónustu
- Heilnæmt fæði og reglubundin hreyfing á starfsstöðvum borgarinnar
- Fjölgun hjúkrunarheimila í samstarfi við ríkið
- Fötluðu fólki sé tryggður rétturinn til að lifa sjálfstæðu lífi
- Sálfræðiþjónusta í grunnskóla, jafnvel með tæknilausnum
Heilbrigður fjárhagur
Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að tryggja sjálfbærni í rekstri borgarinnar enda traustur rekstur forsenda öflugrar þjónustu.
Stjórnkerfi borgarinnar hefur orðið að bákni - minnka þarf yfirbyggingu, stöðva skuldasöfnun og sýna ráðdeild þegar sýslað er með fjármuni borgarbúa. Framkvæma þarf fjármála- og stjórnkerfisúttekt á borgarkerfinu með það að markmiði að einfalda kerfið, auka skilvirkni, draga úr sóun og forgangsraða fé í grunnþjónustu við borgarana.
Auka þarf útvistun verkefna og selja fyrirtæki í samkeppnisrekstri á borð við Ljósleiðara og Malbikunarstöðina Höfða. Fyrirtæki í eigu borgarinnar sem tryggja borgurunum aðgengi að hreinu vatni og orku séu ekki notuð sem mjólkurkýr fyrir borgarsjóð. Allar fjárfestingar borgarsjóðs skyldu sæta arðsemismati áður en þær eru samþykktar. Bæta þarf áætlanagerð og útgjaldaeftirlit á vegum borgarinnar. Vinda þarf ofan af hömlulausri hækkun fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði.

Innleidd verði árangursmenning í allt borgarkerfið þar sem skýr krafa verður á ábata og árangur í þágu borgaranna. Gervigreind verði jafnframt innleidd í auknum mæli svo tryggja megi aukið hagræði í rekstri og betri þjónustu við fólk og fyrirtæki.
Þrýst verði á um lagabreytingu svo fækka megi borgarfulltrúum úr 23 í 15.
- Fasteignaskattar lækkaðir á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði.
- Fjármála- og stjórnkerfisúttekt til hagræðingar og einföldunar.
- Yfirbygging minnkuð, niðurgreiðsla skulda og útvistun verkefna.
- Krafa um ábata og árangur í allri starfsemi.
- Fjárfestingar sæti arðsemismati.
- Bæta áætlanagerð og útgjaldaeftirlit.
- Gervigreind innleidd svo auka megi hagræði og bæta þjónustu
- Borgin selji Höfða og Ljósleiðarann
- Borgarfulltrúum verði fækkað úr 23 í 15.
Kröftugt atvinnulíf og nýsköpun
Sjálfstæðisflokkurinn vill tryggja jákvæða hvata fyrir framfarir og verðmætasköpun í Reykjavík. Tryggja verður að opinber kerfi hafi hvetjandi, en ekki hamlandi áhrif á frumkvæði og framtak í borginni. Einfalda þarf stjórnsýsluna, stytta afgreiðslufresti, fækka skrefum vegna leyfisveitinga og tryggja rafræn umsóknarferli. Við viljum að fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði verði samkeppnishæfir og aðgengi að atvinnulóðum verði betra.
Verðmætasköpun framtíðarinnar mun byggja á hugviti, nýsköpun og tækni. Mikil sóknarfæri eru til nýsköpunar í Reykjavík og mikilvægt að borgin verði eftirsóknarverður staður til rannsókna, þróunar og fjárfestinga, en ekki síst fyrir erlend fyrirtæki og sérfræðinga að eiga aðsetur hér á landi. Öflugt þekkingarsamfélag er liður í samkeppnishæfni borgarinnar og mikilvægt að stjórnsýslan styðji við nýsköpun og að ný fyrirtæki og hugmyndir fái rými til að vaxa og dafna.
Sjálfstæðisflokkurinn vill skapa fjölbreytta borg sem fagnar fjölbreytileika mannlífsins. Nýta þarf mannauð, þekkingu og reynslu allra þeirra sem kjósa að búa og starfa í borginni. Taka þarf vel á móti erlendu hæfileikafólki sem flytur hingað til lands og leitar tækifæra hérlendis til að taka þátt í starfi og verkefnum samfélagsins.
- Byggja upp framboð og skipulag atvinnulóða í borginni.
- Festa miðborgina í sessi sem blómlega miðstöð verslunar og þjónustu.
- Fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði verði lækkaðir.
- Reykjavík verði eftirsóknarverður staður fyrir nýsköpun og hugvitsdrifna atvinnustarfsemi.
- Styttri afgreiðslufrestir og rafræn stjórnsýsla.
- Aukið gagnsæi og betri aðgangur að upplýsingum.
Skapandi samfélag
Í nútímasamfélagi gegnir menningarstarfsemi lykilhlutverki. Hún veitir afþreyingu, skapar atvinnu og er uppspretta nýrra hugmynda og upplifana. Menning er mótunarafl í samfélaginu og skapandi drifkraftur. Bein áhrif þess er erfitt að mæla, en óumdeilt er að menningarlaust samfélag er óbyggilegt samfélag. Efnahagslegur ávinningur af menningu, listum og skapandi greinum er einnig óumdeildur og studdur bæði innlendum og erlendum rannsóknum.
Menning og skapandi greinar gegna lykilhlutverki í uppeldi, forvörnum, lýðheilsu og félagsþroska barna og ungmenna. Slíkt starf er mikilvægur þáttur í því að stuðla að jöfnum tækifærum og eflingu félagslegra tengsla barna með fjölbreyttan bakgrunn. Því þarf að tryggja aðgengi barna og ungmenna að listum og menningu og færa starfið í auknum mæli inn í hverfin.
Reykjavík er miðstöð skapandi greina á Íslandi og á að styðja við og styrkja menningu í borginni með því að stuðla að heilbrigðu starfsumhverfi fyrir listamenn. Stærsti hópur listamanna er sjálfstætt starfandi. Mikilvægt er að skapa alþjóðlega samkeppnishæft umhverfi fyrir skapandi greinar rétt eins og annars staðar í atvinnulífinu. Skapandi greinar munu gegna lykilhlutverki í atvinnuþróun og útflutnings starfsemi á næstu árum sem skapar fjölbreytt störf og tekjur fyrir þjóðarbúið.
Tryggja þarf gott aðgengi að bókasöfnum og styðja við skólabókasöfnin svo efla megi lestur og íslenskukunnáttu. Bókasöfn gegna mikilvægu samfélagslegu hlutverki og þarf að leita leiða til að auka fjölþætta notkun þeirra og nýtingu, svo sem félagsstarfsemi í hverfum borgarinnar. Mikilvægt er að styrkveitingar borgarinnar vegna menningarmála séu faglegar og gagnsæjar. Allir sitji við sama borð þegar kemur að slíkum fjárveitingum.
- Tryggja þarf aðgengi barna og ungmenna að menningu í Reykjavík.
- Aukin áhersla á skapandi greinar í leik- og grunnskólum.
- Aukin notkun bókasafna.
- Styrkveitingar til menningarmála séu faglegar og gagnsæjar.
Grænt umhverfi
Sjálfstæðisflokkurinn vill stuðla að aukinni skógrækt og standa vörð um grænu svæðin í borgarlandinu. Við teljum rétt að uppbygging svæðanna snúi eingöngu að bættri aðstöðu til útivistar og afþreyingar. Með greiðum aðgangi að grænum svæðum má stuðla að bættri andlegri og líkamlegri heilsu en ekki síður bættum loftgæðum.
Sjálfstæðisflokkurinn vill að Reykjavík verði aftur hrein og snyrtileg borg, gras sé slegið, gróður sé hirtur og borgarlandið íbúum til sóma. Áhersla verði lögð á gróðursetningu litríkra plantna til að auka gleði og vellíðan íbúa. Gera þarf átak í hreinsun gatna ekki síst á vorin þegar hætta er á að skítugar götur verði uppspretta að svifryki.
Sjálfstæðisflokkurinn vill bæta sorphirðu í borginni og að hún verði boðin út líkt og í nágrannasveitarfélögum.
Við viljum efna til samstarfs við atvinnulífið um grænni byggingariðnað og tryggja lægri álögur fyrir þá sem velja að byggja með umhverfisvænum hætti.
- Verndun grænna svæða
- Hrein borg, fögur torg
- Sorphirða borgarinnar boðin út
- Stórbætt aðgengi að hleðslustöðvum, í samstarfi við aðila á markaði
- Lægri álögur fyrir umhverfisvænan byggingaiðnað?
- Aukin skógrækt og gróðursetning
Lorem Ipsum is simply dummy
lorem Ipsum is simply dummy text of the printing and typesetting industry. Lorem Ipsum has been the industry's standard dummy text ever since the 1500s






