Það er svo margt sem hægt er að gera strax
Það er kominn tími til að stokka spilin í borginni. Rjúfa kyrrstöðuna, koma málum á hreyfingu og stíga stór skref í átt að framförum. Strax á næsta kjörtímabili er hægt að skapa borgurunum auðveldara líf, einfaldari hversdag og skilvirkari borg. Það er nefnilega svo margt sem hægt er að gera strax.
Reykjavík stendur frammi fyrir brýnum áskorunum sem krefjast tafarlausra aðgerða. Húsnæðisvandinn vex, umferðartafir aukast, biðlistar barna lengjast og óráðsían í rekstrinum eykst. Stefnu borgaryfirvalda þarf í meginatriðum að kollvarpa og borgarbúum þarf að tryggja áheyrn. Verkefnin þola enga bið, þau þarf að leysa strax.
Tími aðgerða, ekki áforma
Á næstu vikum mun Sjálfstæðisflokkurinn kynna hvernig flokkurinn hyggst leysa vandamál borgarinnar og ramma þær lausnir inn í skýran tímaramma. Engar óljósar framtíðarlausnir við nútímavandamálum - engin loforð sem frestast eða gleymast. Kjósendur eiga nefnilega skilið að vita nákvæmlega að hverju þeir ganga. Fyrsta loforðið er: Við lofum engu sem við getum ekki staðið við.
Of lengi hafa kjósendur setið undir hástemmdum loforðum sem reynast ófjármögnuð, ótímasett og óraunhæf. Við hyggjumst bregða út af þeim vana og setja fram forgangsmál sem eru fjárhagslega raunhæf, tímasett og til þess fallin að skila sýnilegum árangri fyrir borgarbúa – strax.
Við ætlum að opna dagheimili fyrir yngstu börnin í samstarfi við stærstu vinnustaðina í borginni - strax. Við ætlum að lenda oftar á grænu ljósi með samstilltum umferðarljósum - strax. Við ætlum að hætta gæluverkefnum og fækka millistjórnendum - strax. Við ætlum að tryggja skilvirkari snjómokstur og götusópun – strax. Við ætlum að flýta Miklubrautargöngum svo framkvæmdir geti hafist - strax á næsta kjörtímabili.
Kosningaloforð okkar í þessari baráttu verða þannig ekki innantóm plön -heldur skýr aðgerðalisti. Hvað og hvenær. Listann birtum við opinberlega og bjóðum kjósendum að fylgjast með framvindunni og herma árangurinn uppá okkur út næsta kjörtímabil. Loforðalistinn okkar í dag, verður þannig einkunnarspjaldið okkar eftir fjögur ár.
Skýr svör og raunhæf loforð
Það getur auðvitað hver sem er lofað breytingum, en við vitum að Sjálfstæðisflokkurinn er eini flokkurinn sem stendur við þær – og eini flokkurinn sem raunverulega getur knúið fram breytingar. Kjósendur eiga skilið skýr svör og raunhæf loforð. Þeir eiga skilið stjórnmálaflokk sem stendur við orð sín og sýnir árangur í verki. Við erum tilbúin. Við vitum hvað þarf að gera - og við ætlum að gera það strax.







