STRAX-D

Verkefnalistinn

Við viljum færa umræðuna frá almennum yfirlýsingum yfir í skýrar lausnir, settar fram á mannamáli. Markmiðið er að sýna hvað við ætlum að gera og byrja á því sem skiptir fólk mestu máli strax.

STRAX-Fjölskylda

Við ætlum að hefja viðræður við vinnustaði um stofnun leikskóla eða daggæslu fyrir börn starfsmanna.

100 DAGA

Við ætlum að sníða umgjörð um dagheimili, nýtt daggæslustig fyrir 12 til 30 mánaða börn í Reykjavík.

100 DAGA

Við ætlum að semja við einkaaðila um uppbyggingu hagkvæms húsnæðis fyrir leikskóla og dagheimili í Reykjavík

100 DAGA

Við ætlum að setja okkur mælanleg markmið um aukinn árangur í skólastarfi og stefna að skólakerfi í fremstu röð.

100 DAGA

Við ætlum að hefja tveggja ára tilraunaverkefni með símafrí í grunnskólum og mæla árangurinn.

100 DAGA

Við ætlum að tryggja óskertan opnunartíma frístundaheimila til klukkan 17 á virkum dögum.

100 DAGA

Við ætlum að vinna með barna- og menntamálaráðherra og kennurum að því að færa einkunnagjöf aftur á talnakvarðann 1-10.

100 DAGA

Við ætlum að innleiða systkinaforgang í leikskólum borgarinnar.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að tryggja heimgreiðslur í allt að 12 mánuði fyrir þau sem kjósa að vera lengur heima að loknu fæðingarorlofi.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að efla íslenskukennslu fyrir starfsfólk dagheimila og leikskóla.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að semja við félag dagforeldra um hærri niðurgreiðslur og gjaldskrá sem samræmist gjaldskrá leikskóla borgarinnar.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að ráðast í aðgerðir til að draga úr 10% veikindahlutföllum hjá starfsmönnum í leikskólum borgarinnar.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að hefja samtal við barna- og menntamálaráðherra um afnám eins leyfisbréfs og styttingu leikskólakennaranáms svo auðvelda megi mönnun leikskóla. 

12 MÁNAÐA

Við ætlum að hefja læsisátak í grunnskólum borgarinnar og mæla árangurinn.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að innleiða samræmt námsmat í öllum árgöngum grunnskólans og samræmt lokapróf úr grunnskólum borgarinnar.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að birta opinberlega niðurstöður úr PISA og samræmdum mælingum grunnskólanna.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að auka framlög til bókakaupa á skólabókasöfnum borgarinnar.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að ráðast í verkefnið „Syngjandi skólar“ og gera grunnskólum borgarinnar kleift að innleiða söng í auknum mæli í skólastarf. 

12 MÁNAÐA

Við ætlum að hefja skógræktarátak með grunnskólabörnum í Reykjavík.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að tryggja að fjölgun leikskólaplássa sé unnin í samræmi við spálíkan um fjölgun barna með það að markmiði að eyða biðlistum.

4 ÁRA

Við ætlum að tryggja að minnsta kosti 300 pláss á nýjum dagheimilum fyrir 12 til 30 mánaða börn.

4 ÁRA

Við ætlum að hefja uppbyggingu hreystileikskóla eða -dagheimila í samstarfi við íþróttafélögin.

4 ÁRA

Við ætlum að endursemja við sjálfstætt starfandi leikskóla svo styrkja megi rekstrargrundvöll þeirra.

4 ÁRA

Við ætlum að tryggja öllum fjölskyldum sem þess óska pláss fyrir börn sín í leikskóla eða dagheimili innan hverfis.

4 ÁRA

Við ætlum að innleiða móttökudeildir í grunnskólum fyrir börn sem flytja hingað til lands og þekkja hvorki íslenska tungu né íslenskt samfélag.

4 ÁRA

Við ætlum að tryggja að börnum bjóðist hafragrautur við upphaf grunnskóladags.

4 ÁRA

Við ætlum að endursemja við sjálfstætt starfandi grunnskóla svo styrkja megi rekstrargrundvöll þeirra.

4 ÁRA

Við ætlum að fjölga valkostum í skólakerfinu fyrir börn með sérþarfir.

4 ÁRA

Við ætlum að efla aðgengi að þroskaþjálfum, talmeinafræðingum og mikilvægri stoðþjónustu í leik- og grunnskólum meðal annars með tæknilausnum.

4 ÁRA

Við ætlum að innleiða aukna hreyfingu í skólastarf og bæta gæði skólamáltíða.

4 ÁRA

Við ætlum að auka áherslu á STEAM fög í grunnskólanum.

4 ÁRA

Við ætlum að tryggja fjölskyldum áreiðanlegar lausnir strax í kjölfar fæðingarorlofs.

FRAMTÍÐ

Við ætlum að leiða íslenskt skólakerfi í röð 10 fremstu í Evrópu.

FRAMTÍÐ

STRAX-Samgöngur

Við ætlum að fara fram á endurskoðun á samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og kalla eftir skýrleika hvað varðar fjármögnun.

100 DAGA

Við ætlum að veita 90% afslátt af gatnagerðargjaldi við gerð bílakjallara.

100 DAGA

Við ætlum að stytta gjaldskyldutíma á bílastæðum í miðborginni svo ekki verði rukkað eftir kl. 18.

100 DAGA

Við ætlum að fjarlægja aðskotahluti úr bílastæðum í miðborg.

100 DAGA

Við ætlum að afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar.

100 DAGA

Við ætlum að hafna fyrirhuguðu deiliskipulagi við Suðurlandsbraut.

100 DAGA

Við ætlum að vinda ofan af þrengingum á gatnamótum við Höfðabakka.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að flýta innleiðingu snjallra ljósastýringa um alla borg.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að hefja rannsóknir á tækifærum til að koma nýjum stofnvegum í jarðgöng í Reykjavík.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að vinna með Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík og LSH að betri álagsdreifingu umferðar með breytilegu upphafi vinnudags.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að tryggja skilvirkari snjómokstur og götusópun á götum og stígum borgarinnar.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að innleiða skilvirkara greiðslukerfi fyrir Strætó.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að nota tæknilausnir og gervigreind til að kortleggja notkun Strætó og bæta þjónustuna á grundvelli gagna.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að bæta lýsingu við göngustíga í borginni og sér í lagi gönguleiðir barna.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að undirbúa innviði borgarinnar undir innleiðingu sjálfkeyrandi tækni.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að stórbæta aðgengi í borgarlandinu að hreinni íslenskri orku fyrir rafbílanotendur, í samstarfi við aðila á markaði.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að hefja uppbyggingu Sundabrautar með áherslu á gangalausnir.

4 ÁRA

Við ætlum að hefja framvæmdir við Miklubrautargöng í einkaframkvæmd.

4 ÁRA

Við ætlum að hefja framkvæmdir við mislæg gatnamót við Reykjanesbraut og Bústaðarveg.

4 ÁRA

Við ætlum að ráðast í viðhaldsátak á gangstéttum borgarinnar.

4 ÁRA

Við ætlum að endurskoða Borgarlínu frá grunni og innleiða nýtt hraðvagnakerfi á sérakreinum sem ekki þrengir að umferð.

4 ÁRA

Við ætlum að fjölga upphituðum göngustígum í borginni.

4 ÁRA

Við ætlum að koma undirgöngum og göngubrúm fyrir á gönguleiðum barna sem þvera fjölfarna vegi.

4 ÁRA

Við ætlum að klára uppbyggingu hjólastíga í samræmi við Hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar.

4 ÁRA

Við ætlum að tryggja rekstraröryggi Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri á meðan annar betri staður hefur ekki fundist.

4 ÁRA

Við ætlum að tryggja að Sundahöfn verði áfram stærsta inn- og útflutningshöfn þjóðarinnar og stækka hafnarsvæðið með landfyllingum. 

4 ÁRA

Við ætlum að tryggja fjölbreytta valkosti um greiðar samgöngur og koma fólki hraðar á milli staða.

FRAMTÍÐ

STRAX-Húsnæði

Við ætlum að draga úr opinberum afskiptum af húsnæðisuppbyggingu og treysta markaðnum til að þróa lausnir sem eftirspurn er eftir.

100 DAGA

Við ætlum að afnema reglur um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar.

100 DAGA

Við ætlum að veita 90% afslátt af gatnagerðargjaldi við gerð bílakjallara.

100 DAGA

Við ætlum að breyta fyrirliggjandi skipulagi nýs hverfis í Keldnalandi.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að breyta fyrirliggjandi skipulagi nýs hverfis í Úlfarsárdal.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að úthluta byggingarlóðum á Kjalarnesi.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að gera uppbyggingarsamninga við húsbyggjendur sem tryggja aukinn byggingahraða og 12 mánaða greiðslufresti byggingarréttargjalda.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að fella brott íþyngjandi kvaðir á húsbyggjendur sem hækka húsnæðisverð.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að þjónustuvæða embætti skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa og skoða möguleika til aukinnar útvistunar og nýtingar gervigreindar.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að tryggja að hámarki 30 daga afgreiðslufrest erinda sem berast skipulagsfulltrúa eða byggingarfulltrúa.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að endurskoða húsnæðisstefnu borgarinnar, draga úr áherslu á niðurgreidd húsnæðisúrræði og auka áherslu á séreign. 

12 MÁNAÐA

Við ætlum að hefja skipulag nýs hverfis í Geldinganesi.

4 ÁRA

Við ætlum að hefja skipulag nýs hverfis á Granda á landfyllingum.

4 ÁRA

Við ætlum að úthluta byggingarlóðum í Gufunesi.

4 ÁRA

Við ætlum að gera þeim íbúum Félagsbústaða sem ná tilteknum tekjumörkum mögulegt að kaupa eignina.

4 ÁRA

Við ætlum að samþykkja útvíkkun vaxtarmarka höfuðborgarsvæðisins svo unnt sé að byggja meira húsnæði.

4 ÁRA

Við ætlum að tryggja öllum möguleikann að eignast eigið húsnæði.

FRAMTÍÐ

STRAX-Rekstur

Við ætlum að fækka millistjórnendum í yfirbyggingu borgarinnar.

100 DAGA

Við ætlum að afnema stefnu borgarinnar um „Viljandi villt“ og bæta umhirðu borgarlandsins. Hrein borg, fögur torg.

100 DAGA

Við ætlum að draga íslenska fánann að húni daglega við Ráðhús Reykjavíkur.

100 DAGA

Við ætlum að leggja niður mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar og færa nauðsynlega verkefni yfir á velferðarsvið.

100 DAGA

Við ætlum að innleiða verklag sem tryggir arðsemismat og ábatagreiningu á öllum fjárfestingum borgarinnar áður en þær koma til samþykktar. 

12 MÁNAÐA

Við ætlum að bjóða út sorphirðu borgarinnar með það að markmiði að bæta þjónustuna.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að nýta gervigreind og útvista verkefnum í auknum mæli við stafræna þróun borgarinnar.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að bæta áætlanagerð og útgjaldaeftirlit á vegum borgarinnar.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að lækka fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að þjónustuvæða borgarkerfið.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að innleiða árangursmenningu í borgarkerfið þar sem skýr krafa verður á ábata og árangur í þágu borgaranna. 

12 MÁNAÐA

Við ætlum að tryggja sumarstörf í Vinnuskólanum fyrir ungmenni við skógrækt í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að auglýsa eftir sprotafyrirtækjum til að leysa áskoranir borgarinnar.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að selja Ljósleiðarann og tryggja að Orkuveitan sinni aðeins kjarnastarfsemi í þágu borgaranna.

4 ÁRA

Við ætlum að selja Carbfix og tryggja að Orkuveitan sinni aðeins kjarnastarfsemi í þágu borgaranna.

4 ÁRA

Við ætlum að selja Malbikunarstöðina Höfða.

4 ÁRA

Við ætlum að þrýsta á um lagabreytingu svo fækka megi borgarfulltrúum úr 23 í 15.

4 ÁRA

Við ætlum að nýta söluandvirði eigna til innviðafjárfestinga og niðurgreiðslu skulda.

4 ÁRA

Við ætlum að ráðast í frekari raforkuframleiðslu á vettvangi Orkuveitunnar og sjá borgarbúum fyrir rafmagni á hagstæðum kjörum.

4 ÁRA

Við ætlum að ráðast að innviðaskuldinni í veitukerfum borgarinnar og tryggja viðhald og fjárfestingu til framtíðar á vettvangi Orkuveitunnar.

4 ÁRA

Við ætlum að nýta jarðhitasvæði Orkuveitunnar til að sjá fólki og fyrirtækjum fyrir heitu vatni á hagstæðum kjörum.

4 ÁRA

Við ætlum að tryggja sjálfbærni í rekstri borgarinnar.

FRAMTÍÐ

STRAX-Hreyfing og útivist

Við ætlum að leyfa þeim sem reka íþrótta- og tómstundastarf að kynna starfsemi sína í grunnskólum borgarinnar.

100 DAGA

Við ætlum að kortleggja aðstöðumál íþróttafélaga og fjárframlög til þeirra svo forgangsraða megi verkefnum og tryggja jafnræði milli félaga.

100 DAGA

Við ætlum að hleypa af stað verkefninu „allir æfa“ sem hvetur til þátttöku allra barna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að virkja fleiri börn af erlendum uppruna til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að lengja opnunartíma sundlauga til kl. 22 um helgar að vetri en til miðnættis um helgar að sumri.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að færa listnám í auknum mæli inn í grunnskólann í samstarfi við sjálfstætt starfandi aðila.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að endurskoða samninga borgarinnar við tónlistarskólana með það að markmiði að fleiri börn geti lært á hljóðfæri.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að kortleggja vanefndir á samningum borgarinnar við íþróttafélögin og viðhaldsþörf og setja fram tímasetta aðgerðaáætlun til úrbóta.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að tryggja í samstarfi við hverfisíþróttafélög að börn í yngstu bekkjum grunnskólans geti æft margar íþróttir fyrir eitt gjald.

4 ÁRA

Við ætlum að auka samfellu milli skóla, frístundar, íþrótta og tómstunda svo auðvelda megi líf fjölskyldunnar.

4 ÁRA

Við ætlum að bæta aðstöðu fyrir afreksstarf með íþróttafélögunum.

4 ÁRA

Við ætlum að vinna að uppbyggingu þjóðarleikvangs- og hallar í samstarfi við ríki og einkaaðila.

4 ÁRA

Við ætlum að lyfta sögu Viðeyjar og skilgreina hana sem öflugt útivistarsvæði með golfvelli, gönguleiðum og veitingaþjónustu.

4 ÁRA

Við ætlum að byggja upp aðstöðu við sjávarsíðuna til útivistar og afþreyingar.

4 ÁRA

Við ætlum að endurvekja og byggja upp aðstöðu til skíðaiðkunar og útvistar í Skálafelli í samstarfi við einkaaðila.

4 ÁRA

Við ætlum að stöðva fyrirhugaða lokun Heiðmerkur og tryggja að þetta verðmæta svæði verði áfram aðgengilegt.

4 ÁRA

Við ætlum að koma öllum börnum í Reykjavík í virkt íþrótta- eða tómstundastarf.

FRAMTÍÐ

Við ætlum að gera Reykjavík að útivistarborg á heimsmælikvarða.

FRAMTÍÐ

STRAX-Efri árin

Við ætlum að endurvekja öldungaráð borgarinnar og efla samstarf við hagsmunasamtök eldra fólks.

100 DAGA

Við ætlum að tryggja að bílastæði fylgi nýjum íbúðum sem byggðar eru fyrir eldra fólk.

100 DAGA

Við ætlum að innleiða 60.000 kr. árlegt frístundakort með tekjutengingu fyrir 67 ára og eldri.

100 DAGA

Við ætlum að innleiða tilkynningavef vegna ofbeldis gagnvart eldra fólki í samstarfi við félagsþjónustuna.

100 DAGA

Við ætlum að fjölga bekkjum í borgarlandinu á sólríkum og skjólgóðum stöðum.

100 DAGA

Við viljum gera fólki kleift að búa heima svo lengi sem það kýs með því að efla heimahjúkrun og heimaþjónustu.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að auka velferðartækni í þjónustu við eldra fólk.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að ráðast í átaksverkefni svo auka megi tæknifærni eldra fólks.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að tryggja að eldra fólk í þjónustu borgarinnar hafi gott aðgengi að hollum og góðum mat.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að efla félagsstarf eldra fólks og vinna markvisst að því að draga úr einmanaleika.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að auka afslætti af fasteignasköttum eldri borgara og færa þá til samræmis við nágrannasveitarfélög.

4 ÁRA

Við ætlum að styðja við uppbyggingu lífsgæðakjarna í Reykjavík.

4 ÁRA

Við ætlum að tryggja lóðir og liðka til fyrir húsnæðisuppbyggingu á vegum hagsmunasamtaka eldra fólks.

4 ÁRA

Við ætlum að gera átak í uppbyggingu hjúkrunarheimila í samstarfi við ríkið og einkaaðila s.s. Grund, Hrafnistu ofl.

4 ÁRA

Við ætlum að fjölga upphituðum göngustígum svo hægt verði að ganga í öllum veðurskilyrðum.

4 ÁRA

Við viljum að Reykjavík verði besti staður í heimi til að eldast.

FRAMTÍÐ

STRAX-Atvinnulíf og menning

Við ætlum að standa vörð um Suðurlandsbraut sem atvinnusvæði og afturkalla fyrirhugað deiliskipulag fyrir svæðið.

100 DAGA

Við ætlum að lækka gjöld fyrir afnot af borgarlandinu undir viðburðahald um 50%.

100 DAGA

Við ætlum að tryggja aðgang að skólahúsnæði borgarinnar undir menningarviðburði og menningarstarf í hverfunum.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að leita lausna með lóðarhöfum að Ártúnshöfða sem standa á útrunnum lóðarleigusamningum án uppkaupsákvæða.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að einfalda leyfisveitingar hjá byggingafulltrúa og heilbrigðiseftirliti.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að tryggja að hámarki 30 daga afgreiðslufrest erinda sem berast skipulagsfulltrúa eða byggingarfulltrúa.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að ráðast í átaksverkefni til að laða nýsköpunarfyrirtæki og hugvitsdrifna starfsemi að borginni.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að þjónustuvæða embætti skipulagsfulltrúa, byggingarfulltrúa og heilbrigðiseftirlits og skoða möguleika til aukinnar útvistunar.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að tryggja færri en markvissari menningartengda styrki, auka áherslu á stuðning við grasrótarstarf og auka eftirfylgni með verkefnum.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að tryggja ungu skapandi fólki aðstöðu til listsköpunar í borginni.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að lækka fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði.

12 MÁNAÐA

Við ætlum að fjölga atvinnulóðum í Reykjavík.

4 ÁRA

Við ætlum að tryggja sjávarútvegi og matvælaframleiðslu pláss til vaxtar í Reykjavík.

4 ÁRA

Við ætlum að tryggja að Sundahöfn verði áfram stærsta inn- og útflutningshöfn þjóðarinnar og stækka hafnarsvæðið með landfyllingum.

4 ÁRA

Við ætlum að hleypa af stað átaksverkefni til að glæða hverfiskjarna lífi með auknum rekstri, þjónustu og menningu.

4 ÁRA

Við ætlum að þróa ferðaþjónustu í sátt við samfélagið og umhverfið og halda áfram að fylgjast með viðhorfi íbúa til ferðamanna og ferðaþjónustu.

4 ÁRA

Við ætlum að viðhalda góðu samstarfi sveitarfélaga og fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu á vettvangi Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.

4 ÁRA

Við ætlum að gera Reykjavík að eftirsóknarverðum stað fyrir innlend og erlend fyrirtæki.

FRAMTÍÐ

Við ætlum að gera Reykjavík að menningarborg á heimsmælikvarða.

FRAMTÍÐ